Pabbi á afmæli...Hafdís Bára Böðvarsdóttir

Já jæja.. comment strax þannig að ég varð að blogga pínu meir.. Já pabbi gamli á afmæli í dag. Ég er búin að vera bara löt í dag, veit ekki af hverju! Það helltist bara þessi þreyta yfir okkur Böðvar og við erum bara búin að liggja upp í rúmi í dag. Böðvar er heldur ekki vanur að sofa svona svaka mikið. En þetta var mjög næs!!

En ég hef samt voða lítið að segja.. Er bara ekki búin að gera neitt í dag annað en að mjólka og sofa.. þannig að ég skrifa bara meira næst. Ætla að fara að horfa á Desperate housewifes

hæ hó jibbý jei og jibbý jei...Hafdís Bára Böðvarsdóttir

það er kominn 17.júní.. Jæja ákvað að blogga fyrir hana Lilju mína.
Það er allt gott að frétta af mér og mínum. Skellti mér á djammið á  Akureyri sl nótt og mamma og pabbi pössuðu í fyrsta skiptið yfir heila nótt. En það gekk bara vel. Kom svo heim beint í mjaltir.

Ég er bara alltaf heima í fæðingarorlofi. Böðvar er 5 mánaða í dag. Stóri strákurinn. Fer með hann í skoðun á morgun. Hlakka til!

Er að spá í að byrja að vinna aftur í desember, til að eiga pening fyrir jólagjöfum.

Annars verð ég hér heima í sumar, heyskapur. Ætla svo í utanskóla í haust. Fara svo á Hvanneyri sem allra fyrst. Prófa það, og taka strákinn með. Langar pínu að fá að prófa að sjá um mig og mitt barn sjálf... Þarf ekki að hugsa um neitt hérna heima..!! Ekki sniðugt.

Ég skal reyna að skrifa meira inn næst.. verð bara að fara að sofa núna..

BAHAMA EYJA BAHAMA EYJA BAHAMA EYJA BAHAMA...Hafdís Bára Böðvarsdóttir

Jebba fékk mömmu og pabba til að passa um helgina og skelllti mér á þetta líka fína djamm.. þau bara gerast ekki betri.. En annars er sauðburðurinn á fullu hér.. allt samt gott að frétta í þessu líka fína veðri! Hitti svo líka Sigrúnu Öldu á djamminu!! GEggjað gaman að hitta kellu! Hún er liggur við svartari en nepalarnir ;) múhahaha En já Böðvar Ingi er orðinn rúmlega 3jamán og er orðinn tæp 8,8 kg og 64 cm! Litla barnið mitt er orðið svo stórt!!
En já ég hef verið frekar löt við að blogga því það er svo mikið að gera og gott veður úti.. en sjáum bara til hvort það lagist..

Blessuð sé minning þín!Hafdís Bára Böðvarsdóttir

Já þetta er alveg ótrúlegt. Sandra fyrrum bekkjarsystir mín er dáin! Hún dó á fimmtudaginn, en var þá tekin úr sambandi greyið! Ekki orðin 20 og tveggja barna móðir. Sorglegt!!

En allavega.. það er geggjað gott veður!! Svolítið kalt, en mig dauðlangar til að taka tamið inn núna og fara á hestbak! Ég verð bara að fara að drífa mig að temja klárinn minn ;D Eða fara að fara á bak með Heiðu.. hvur veit..

ætla að fara að fara í ræktina.. get ekki annað..!!! Mér líður illa að komast ekki i fötin sem ég komst í áður en ég var ólétt, og ég er ekki nógu þolinmóð með að kílóin fjúka kannski ekki alveg strax af. Ég var eiginlega að vonast til þess! ætlaðist eiginlega til að eg yrði strax eins og ég var aður.. en neinei.. ekki er ég það heppin! Þannig að ég verð að fara að hreyfa mig. Og mér hefur tekist til að fá Heiðu með mér svo ég verði ekki ein!! :D Þannig að ég ætla að verða komin í gott form fyrir 20 afmælið mitt!!!! pottþétt!

En annars hef ég ekkert að segja neitt merkilegt.. Sigrún og Stefán og Herdís ætla að koma á eftir..
Böðvar er sofandi.. og já.. það er að koma matur..

Later..

Páskarnir búnirHafdís Bára Böðvarsdóttir

Páskarnir eru loksins búnir! Ég át allt of mikið og kílóin hrannast upp alveg.. er ekki ein af þeim sem missa þau við brjóstagjöf greinilega..! En er samt hætt með hann núna.. Hann var alltaf að fá í magann þannig að það er auðveldara að hætta þessu því ég hef ekki orku í að standa í þessu nótt eftir nótt að ganga með hann um gólf til að hugga hann því hann verður svo pirraður og getur ekki sofið í vöggunni og vill bara vera í fanginu á mér... Ég þarf bara að fara að hreyfa mig enn meir!! Og hætta að borða.. eða allavega að minnka það töluvert!
Valdi og Elsa amma komu á föstudag. Valdi kom að sjálfsögðu með bjórkút. Ég fékk mer samt ekki bjór í þetta skiptið! ER svo hrædd um að byrja aftur að reykja ef eg fæ mér í glas þannig að það mun bíða til betri tíma!
Páskarnir voru fínir! Of mikil sætindi étin! Verð að fara að hreyfa mig meira.. er að spá í að fara í ræktina.. veit samt ekki..

Var að frétta að Sandra í Héraðsdal liggi þungt haldin á sjúkrahúsi eftir að hafa tekið of stóran skammt! Að hún sé alveg orðin heiladauð, nýrun og allt ónýtt.. að það sé bara næsta skréf að taka hana úr sambandi!! Ég vil bara segja.. Guð veri með þér!! og þínum strákum!

HEi Sigrún Alda.. af hverju er síðan þín læst? á ekki að senda mér lykilorðið ?! ;)

Mér leiðist pínuHafdís Bára Böðvarsdóttir

Jæja allt gott að frétta af mér og mínum. Hef ekki farið neitt að ráði í tölvuna núna í langan tíma þar sem það er svo mikið mál þar sem ég þarf að setja batteríið í aðra tölvu og hlaða það þar og svo set ég það í mína tölvu og get verið í henni þar til batteríið er búið.. vesen! En já, það gengur allt vel með Böðvar Inga. Fór með hann um daginn í ungbarnaverndina og viti menn.. hann er orðinn 6,5 kg og 58 cm. Hann er svo fljótur að stækka. Var einmitt að hugsa út í það að ég á engar myndir af okkur saman og ég held að ef ég ætla að eiga mydnir af okkur á meðan hann er svona lítill að þá verð ég að drífa í því að taka þær!! Er svo farin að gefa honum graut, og hann er farinn að sofa loksins í alveg 4 1/2 tíma fyrsta dúrinn eftir miðnætti. Voða næs! Er samt alltaf þreytt sjálf! Tekur á. En þetta hefst. Já, förum svo út í fjós alla daga, stundum oft á dag! Böðvar sefur svo vel útí vagni... helst í öllum hávaðanum. Baulinu, mjaltavélunum og bara helst öllu í einu! Kippist ekki upp við geltið í Skugga eða neitt! Draumabarn! heh
En já, er búin að kaupa mér tölvu! Atli reddaði því fyrir mig í dag! Hann kemur svo um helgina! Oh ég hlakka til! þá fer ég líka að setja inn myndir af prinsinum á barnalandið og svona!
En já, mér leiðist pinu. Langar að fara að hitta krakkana sem ég var með fyrir nokkrum árum, áður en ég byrjaði í þessu rugl sambandi!! I want my life back!! Eeeen þá þarf maður að pæla í pössun og svona.. en það kemur. seinna aðeins.

Jæja ætla að horfa á bráðabanann í gettu betur

Út í vagn loksinsHafdís Bára Böðvarsdóttir

Jæja ég hef verið svo upptekin við að setja inn á barnalandssíðuna að ég hef ekki gefið mér tíma til að blogga hér neitt. En já alla þessa viku hefur Böðvar verið með í maganum og ég lítið sem ekkert sofið á næturnar vegna þess að honum líður best uppréttum og ég get ekkisofið sitjandi... En hann er held ég að skána núna. Ég hætti að borða kokteilsósu, drekka mjólk og djús og borða súrmjólk því þetta er líklegast eitthvað sem hann er að fá í magann af frá mér.. því miður. En svo er bara gaman að prófa hvað það er af þessu sem er valdurinn. Ég drekk mjólk daglega og borða súrmjólk næstum daglega.. þannig að maður veit aldrei.
En já setti guttann í bað í gær og mínum leið svoooo vel. Honum þykir pínu óþægilegt að vera í hálf lausu lofti þarna þar sem ég þarf að halda hausnum uppi en er samt alveg rólegur og nýtur þess í botn. Og það allra besta er það að vera nakinn í handklæði. Það er toppurinn. og svo að sjálfsögðu að fá að pissa í rúmið hjá mömmu sinni. Gat ekki verið betra.
Svo fór hann í fyrsta skiptið út í vagn í dag. Ég var svooo ánægð að það skyldi vera nánast logn þannig að ég gaf honum að drekka og klæddi hann svo í og kom honum fyrir í vagninum. Haldiði ekki að það hafi komið vestan strekkingur akkurat þegar við fórum út þannig að ég varð að bakka með hann um hlaðið. Og passa að við fykjum ekki. Þannig að við flýttum okkur bara inn aftur. Svo þegar hann vaknaði, var komið logn aftur.. Og núna er hvasst. Ég bara skil þetta veður ekki..! Herdís Ósk kom með mömmu sinni og pabba í dag. Og var voða góð að hjálpa mer að klæða Böðvar í vettlinga og Sokka og húfu. hehe. Og hún var líka voða dugleg við að stinga snuðinu upp í hann! Frekar harkalega en það hafðist stundum :D
Jæja ætla að láta þetta gott heita. Ætla að fara setja inn nokkrar myndir af baðinu og vagnferðinni á barnaland. Bless í bili.

MagavesenHafdís Bára Böðvarsdóttir

Afsakið hvað síðasta blogg var stutt.. var með Böðvar á handleggnum grenjandi.. þar sem hann er endalaust með loft í maganum.. ! :S Veit ekki hvað ég get gert til að laga það, þar sem þetta er búið að vera svona í um 2 vikur :S Ætla að spyrja Birgittu ljósmóður á morgun, hún kemur að skoða Böðvar.. hann er að verða 4 vikna! Vá hvað þetta er fljótt að líða! En já.. skírnin gekk mjög vel fyrir sig. Það var mjög slæmt veður þannig að við vorum farin að halda að það kæmust engir gestir, en þau létu sig hafa það og mættu!! Það heyrðist ekki múkk í Böðvari alla athöfnina, en pabbi hélt á honum og mamma og Hadda amma voru skírnarvottar. Athöfnin var samt pínu vandræðaleg, presturinn sagði ekkert hvernig þetta ætti að vera. Ég vissi ekkert hvort ég ætti að standa við hliðiná pabba eða hvað.. eða hvort amma og mamma ættu líka að koma þannig að það sátu allir nema pabbi sem hélt á barninu og presturinn.. hehe.. jájá.. svona er nú það. Kökurnar voru svoo góðar.. borðaði yfir mig af marenstertu, og er búinað éta hana upp til agna núna. Kláraði síðustu sneiðina í morgun :p Sykurinn fór misvel í suma.. Helgi Snævar varð ofvirkur og Herdís Ósk líka.. hehe gaman af því.. Herdís lá í nammiskálinni. Helgi fór um helst hlaupandi upp og niður stigann og út um allt og  pabbi hans á eftir honum, eða þá að hann ohh það var snilld.. labbaði alltíeinu ,nokkrum sinnum, að Herdísi og kyssti hana á munninn og hún bara.. what?!?! ohh þessir krakkar eru æði! Böðvar Ingi fékk fína og flotta pakka.. og svo er það bara að stofna bankabók og setja inn peninginn.. Í gær setti ég hann svo í bað í risastórum bala.. það gekk vel, enda í annað skiptið sem ég baða hann og þykir honum það rosa þægilegt! En já jæja.. ætla að láta þetta duga hér, ætla að fara að snúa mér að barnalandssíðunni..

og hann heitir...Hafdís Bára Böðvarsdóttir

jæja þá er skírnin búin og gekk vel. um 20 manns. drengurinn fékk nafnið Böðvar Ingi Hafdísarson og ég er búin að opna síðu, www.bodvar.barnaland.is

Skírn á sunnudagHafdís Bára Böðvarsdóttir

Jæja þá er það ákveðið að það á að skíra á sunnudaginn nk. Ég er aðeins stressuð en það er í góðu.. Fór með hann í fyrstu búðarferðina í gær.. það gekk vel, nema það að hann varð pínu pirraður í endann á skaffóferðinni.. þannig að við drifum okkur bara útí bíl þar sem hann engdist um grátandi.. þar til mamma kom og þá fórum við til ömmu til að skipta á honum og gefa honum að drekka og svo var bara brunað heim.. Svo er það bara núna tiltekt og bakstur.. sá stutti er einmitt núna hjá afa sínum sem er að fíflast íhonum til að halda honum vakandi svo ég þurfi ekki að standa í andvöku veseni í nótt.. hehe.. já.. en barnið er farið að drekka svo mikið.. hann er alveg í 140 ml með spá pásu á milli.. en það er samt alveg slatti.. og ég er hreinlega að geldast upp.. Varð pínu slöpp um daginn.. og allt datt niður.. veit ekki hvort ég eigi eftir að ná mér upp aftur en það kemur í ljós.. Hann er bara farinn að fá meiri þurrmjólk.. En er samt alltaf með loft í mallakútnum. Ég nenni ekki að reyna að setja myndir inn á barnaland hérna heima þannig að ég þarf að fara með myndir á disk út á krók, eða taka tölvuna og nota netið þar því það gengur hraðar fyrir sig.. Jæja ætla að láta þetta duga og fara að koma mér í rúmið ef sá stutti er sofnaður.. Er alveg að lognast út af.. Kem með fréttir af þeim stutta.. nafnið og alles eftir helgi!! :D

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Hafdís Bára Böðvarsdóttir
  • Atvinna: Verðandi móðir
  • Hjúskaparstaða: Fráskilin
  • Um mig: Sveitastelpa í húð og hár.

Auglýsing

Könnun

Á ég að gera heimasíðu á barnalandi fyrir krílið?

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...